Spurningabanki

Spurning 12

Til baka

Málfríður á nýtt rafmagnshjól sem hún ætlar að prófa og hún ákveður að hjóla í kringum Þingvallavatn. Þegar hún leggur af stað er hjólið með 80% hleðslu. Þegar hún hjólar á jafnsléttu er hún með slökkt á vélbúnaðinum, þegar hún hjólar upp brekku er hún með kveikt og hjólið tapar 3% hleðslu á hverjum kílómetra. Þegar hún hjólar niður brekku bætist við 2% hleðsla á hvern kílómetra. Hjólaferð Málfríðar var 60 kílómetrar og þegar hún klárar ferðina er hjólið með 55% hleðslu. Hvað hjólaði Málfríður marga kílómetra upp brekku ef gefið er að hún hjólaði 40 km á jafnsléttu?

< >